Rofar

Rofar nýtast vel þeim sem geta ekki nýtt sér hefðbundinn stýribúnað fyrir tölvur eða eiga erfitt með að kveikja á raftækjum. Rofar geta verið af ýmsum stærðum og gerðum. Möguleikar í notkun rofa eru margir og eru þeir oft notaðir þegar unnið er í tölvu en þó einnig til að kveikja og slökkva á tækjum sé hann tengdur við rofabox. Þegar rofar eru notaðir með tölvum koma þeir oftast í stað bilstangar, „enter“ takka og/eða örva takka.

Hvernig rofa einstaklingurinn notar fer eftir hreyfigetu hans og hversu stóran eða lítinn rofa hann þarf. Út frá hreyfigetu einstaklingsins er staðsetning rofans valin. Henti illa að hafa rofann á borði þannig að ýtt er á hann með hönd þá getur hann verið staðsettur við hné, höfuð, olnboga eða fætur en í sumum tilfellum þarf einstaklingurinn að fá sérstaka gerð af rofa.

Það er valdeflandi fyrir einstaklinginn að vera sjálfur við stjórnvölinn og geta kveikt/slökkt á því sem hann vill þegar hann vill, sagt frá hlutum og almennt að vera sjálfstæður í því sem hann er að gera.

Rofi sem er hnappur (t.d. Jelly bean)

Þessir rofar koma í nokkrum stærðum og í nokkrum litum (yfirleitt gulum, rauðum, grænum og bláum). Þegar rofinn er tengdur sem örvatakki þá er annarsvegar hægt að smella á rofann og bendillinn færist „einu sinni“ en hins vegar ef honum er haldið inni þá færist bendillinn áfram þar til hætt er að halda rofanum niðri eða þar til bendillinn er kominn út á enda. Það getur hentað vel að nota rofa með mismunandi litum t.d. einn lit fyrir örvatakka en annan fyrir „enter“, eða að merkja þá með t.d. límmiða.

Hægt er að festa rofann á arm þannig að hann sé stöðugur á þeim stað sem hentar einstaklingnum best að ná til rofans. Á rofanum eru yfirleitt göt þannig að hægt sé að festa hann með skrúfum en þegar fleiri en einn einstaklingur notar rofann getur verið gott að festa hann með frönskum rennilási þannig að hann sé stöðugur en jafnframt auðvelt að færa hann til eins og hverjum og einum hentar.

Ef einstaklingnum hentar best að hafa rofann í lófanum og smella á hann með fingrunum þá getur verið gott að nota minnsta rofann. Þoli einstaklingurinn að hafa snúruna úr rofanum milli fingranna þá getur það hjálpað við að halda rofanum á sínum stað.

Rofamotta

Þessi rofi er eins og lítil motta. Rofinn er notaður til að virkja t.d. forrit eða þegar hann er tengdur við rofabox þá er hægt að kveikja á raftæki. Hægt er að setja rofamottuna á gólf og virkja hana með því að stíga á hana eða rúlla sér á hana. Einnig væri hægt að setja hana á læri, bringu eða maga einstaklingsins en ef hún á að vera föst þyrfti að nota límband, stóra teygju band eða franskan rennilás.

Tveggja hnappa rofi – með þannig rofa er t.d. hægt að nota til að slökkva og kveikja á tæki.

Rofabox

Rofabox er notað þannig að t.d. raftæki er stungið í samband við Rofaboxið og rofi er einnig tengdur við það. Þegar ýtt er á rofann kviknar á raftækinu.

Notkunarmöguleikar með rofum

Rofi tendur í rofabox

Það er gott að nota rofa og rofabox ef einstaklingurinn ætlar t.d. að æfa sig í eða njóta þess að velja á milli tveggja hluta. Ef notuð eru tvö rofabox getur einstaklingurinn valið hvort hann vill annars vegar til dæmis kveikja á útvarpi eða hins vegar á nuddtæki.
Gott er að hafa mismunandi lit á rofum fyrir hvort tæki eða setja mynd af tækinu á rofann þannig að einstaklingurinn viti hvor rofinn er fyrir hvort tæki.

Hugmyndir af raftækjum sem hægt er að kveikja á:

  • Fótanuddtæki
  • Vifta
  • Hárblásari
  • Nuddtæki
  • Blandari
  • Útvarp
  • Geislaspilari

Tölvuleikir sem hægt er að nota rofa við

Á vefsíðunni Papunet Games eru nokkrir leikir sem hægt er að tengja við rofa og rofabox. Einnig er hægt að nýta leikina þar til að efla samvinnu t.d. einn notar rofa til að velja púsl og sleppa púsli á meðan hinn færir músina.

Í tölvuforritinu Big Bang eru ýmsir leikir sem styrkja skilning á „orsök og afleiðingu“ það er að segja „ef ég ýti/smelli þá gerist eitthvað“. Hægt er t.d. að kveikja á tónlist og litríkum formum. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Örtækni.

Kaup á rofum og búnaði

TMF Tölvumiðstöð er með upplýsingar um búnað.

Örtækni selur rofa, tölvumýs og annan búnað.

Abilia selur meðal annars rofa

Enabling devices selur ýmsan búnað sem getur nýst fötluðu fólki og einnig leikföng sem hæt er að tengja við rofa.

AbleNet selur rofa og annan búnað.

Inclusive Technology selur rofa ásamt ýmisum tækjum og forritum sem gagnast fötluðu fólki.