Makey Makey
Makey Makey getur gert nánast hvaða hlut sem er að rofa og eru möguleikarnir í notkun nánast óteljandi. Þú tengir Makey Makey við tölvu í gegnum usb tengi, hvort sem þú hefur Windows eða Macintos, en þarft ekki að setja upp forrit í tölvunni. Síðan tengir þú klemmur í Makey Makey, þig og í hlutinn sem á að verða rofi og getur leikið þér að því að breyta nánast öllu sem þú vilt í rofa hvort sem það er banani, kubbar, boltar, teikningar, leir eða annað. Við snertingu virkjast rofinn.
Til að átta sig á möguleikum Makey Makey er best að horfa á myndbönd þar sem ýmsir möguleikar eru sýndir.