Eye Gaze

Eyegaze búnaðurinn er augnstýring fyrir tölvur. Búnaðurinn er festur við skjáinn og nemur myndavélin í búnaðnum hreyfingar augans og ákvarðar úr frá því hvar á skjáinn notandinn horfir. Hægt er að þjálfa upp sjónræna færni og athygli einstaklingsins, meta hana og fá yfirlit yfir getuna.

Eyegaze og verkefni tengt búnaðnum, gefa góða mynd af áhuga einstaklingsins. Búnaðurinn veitir einstaklingnum möguleika á að hafa áhrif á umhverfið og eykur skilning hans á því og boðskiptum. Hægt er að velja eða „smella“ á ákveðinn hlut með því að blikka, horfa á skjáinn í ákveðinn tíma eða með rofa sem er tengdur við tölvuna.

Notkun Eyegaze búnaðar eykur möguleika á vali og ýtir undir tjáskipti/boðskipti. Aukinn möguleiki á tjáskiptum ýtir undir valdeflingu einstaklingsins sem yfirfærist í aukin lífsgæði.

Hægt er að spila tölvuleiki með Eyegaze búnaðnum á vefsíðunni EyeGaze games. Þá leiki er einnig er hægt að spila með hefðbundnum tölvubúnaði.

Hæfingarstöðin hefur notað Eyegaze búnað frá Tobii en fleiri framleiðendur framleiða búnaðinn og má þar nefna EyeGaze Inc og Irisbond.