Smáforrit

Smáforrit (öpp) og tölvuforrit/-leikir sem hafa verið notaðir í Hæfingarstöðinni Bæjarhrauni

Spjaldtölvur eru nytsamlegar til ýmissa nota til dæmis fyrir dagbókarskrif, minnislista, til tjáningar, til skynörvunar, til fræðslu og til afþreyingar s.s. að hlusta á tónlist, hlaðvarp, sögur, til að horfa á þætti á netinu, til að spila leiki eða til að reyna á hugann.

Oft kemur upp sú staða að smáforrit eða tölvuforrit henti illa þjónustunotendum Hæfingarstöðvarinnar. Hér fyrir neðan má finna þau forrit sem við höfum prófað og henta ágætlega.

Electro LunchPad

Hægt er að spila takt og taka upp hljóð/rödd. Hægt er að breyta litunum á tökkunum.

Finger paint with sounds

Hægt er að teikna bæði með hljóðáhrifum eða án þess.

Glow Draw

Teiknað er með björtum litum og hægt að velja um mismunandi bursta s.s. glóandi, neon, regnbogalitað og krít. Hægt að spila eftir á hvernig var teiknað.

Gravitarium (fyrir Apple tæki)

Hægt er að teikna litríkar myndir með því að snerta skjáinn.

JABtalk

Þetta er tjáskiptaforrit þar sem hægt er að setja inn myndir og tala inn á þær. Hægt er að setja inn titring þegar skjárinn er snertur.

Keezy (fyrir Apple tæki)

Í appinu eru 8 flísar, mismunandi að lit. Hægt er að taka upp tóna eða tónlist og vista undir „flísinni“. Þegar ýtt er á flísina spilar hún tóninn/tónlistina sem var tekin/-nn upp.

Kids piano

Í forritinu eru ýmis lög kennd. Sýnt er hvaða nótur á að ýta á. Hægt að spila með píanó, gítar og tropmet hljóm. Einnig er hægt að fá dýrahljóð.

Lightning art

Litlar agnir svífa um skjáinn. Þegar skjárinn er snertur koma hvítlitaðar smáar línur út frá staðnum sem var snertur og agnirnar breyta um lit. Hægt er að velja hve margar agnir eru á skjánum, hve stórar þær eru og hve langar.

Loopimal (fyrir Apple tæki)

Dýr hreyfa sig og undir er spiluð tónlist. Sett eru form á „tímalínu“ og þegar komið er að forminu breytir dýrið um stellingu. Hægt er að velja um að hafa eitt, tvö eða fjögur dýr á skjánum í einu.

Piano with Song (fyrir Apple tæki)

Mikið af lögum eru í þessu forriti. Hægt er að spila eins og þú sért að spila með hljómsveit. Hægt er að velja á milli flygils, sembals, hljómborðs, orgels og klukkuspils. Kúlur detta niður fyrir ofan nóturnar sem á að spila á.

Pocket Pond 2

Fiskunum er gefið fóður og hann stækkar og vex. Það er hægt að „skvetta“ vatninu. Hægt er að skreyta tjörnina og selja fiskana. Einnig er hægt að skoða tjarnir hjá öðrum.

Real Drum

Spilað er á trommur í þessu forriti. Hægt er að setja inn myndir og hljóð í forritið.

Story Creator (fyrir Apple tæki)

Hægt er að búa til bók sem inniheldur myndir, myndskeið, texta og hljóð. Góð leið til að endursegja atburði eða rifja upp skemmtilegar stundir. Möguleiki á að deila sögunni með öðrum.

SoundingBoard (fyrir Apple tæki)

Hægt er að nota myndir forritsins eða setja inn sínar eigin myndir og hljóð með. Þetta getur nýst vel t.d. þegar valið er á milli hluta.

SoundPrism

Hér er býrðu til tónlist og getu valið um tónhæðir og laglínur. Hægt er að hafa bakgrunnshljóð t.d. uppáhalds lagið og láta það hljóma á meðan þú spilar.

Talking ginger

Hægt er að klappa kettinum, pota í hann, kítla hann, láta hann endurtaka það sem þú segir, gera hann tilbúinn fyrir háttinn og spila leiki með kettinum.

Wa Kingyo Le – Goldfish pond

Í þessu appi synda um gullfiskar teiknaðir í japönskum málarastíl. Hægt er að dreifa blómum um tjörnina. Hugsað sem slakandi að horfa á.

Önnur sniðug smáforrit:

Book creator

Hægt er að setja inn myndir og texta og/eða lesa inn á hverja blaðsíðu. Getur nýst vel í „minningarstundum“ eða til að segja frá deginum/sérstökum viðburðum.

Moment Diary

Hægt er að gera dagbók með samansafni úr myndum, kvittunum, mataruppskirftum og fleiru þess háttar sem safnað er saman þeim degi sem þú velur. Þannig er hægt að varðveita minningar og auðvelda frásögn á því sem gert var.

NikiPlay

Í Niki Play er hægt að safna saman uppáhalds tónlistinni og tónlistarmyndböndum. Einnig er hægt að taka upp eigin rödd.

Balloon pops

Þú snertir blöðruna og hún springur, en nýjar koma í staðin. Þetta forrit kostar.