Sýndarveruleikagleraugu
Það er mikil upplifun fyrir alla að setja á sig sýndarveruleikagleraugu og skoða umhverfi í gegnum þau. Gleraugun geta að sjálfsögðu haft skemmtanagildi en á Hæfingarstöðinni er markmiðið að örva skynjun og veita upplifun sem ýtir undir tjáningu.
Ýmsar taugabrautir eru jafnframt virkjaðar og tilfinningarnar geta farið af stað. Það getur því verið mikil örvun sem fer fram þegar sýndarveruleikagleraugun eru notuð.
Upplifunin af því að „vera“ í frumskógi, meðal dýra eða í stórborg getur veitt einstaklingnum mikla gleði, nýja sýn og ýtt undir að hann vilji ræða þessa upplifun sína. Þá er starfsmaður til staðar til að taka á móti boðskiptunum frá einstaklingnum. Þeir geta rætt það sem hann sá. tilfinningarnar sem komu fram og þessa upplifun. Jafnframt væri hægt að fara í fræðslu eftir upplifun í sýndarveruleikagleraugum. Einstaklingurinn er í öruggu umhverfi og er með starfsmanni sem hann treystir.
Þegar leitað er að myndböndum til að sýna er best að leita undir 3D video.