Skynörvunarherbergi

Hæfingarstöðin Bæjarhrauni hefur þrjú herbergi þar sem skynjun einstaklingsins er örvuð. Eitt herbergið kallast Hvíta herbergið, annað Svarta herbergið og þriðja er nuddherbergi.

Aðal tilgangur herbergjanna er að veita jákvæða upplifun á fjölbreyttri skynörvun í öruggu og þægilegu umhverfi, eins og lagt er upp með í Snoezelen. Þjónustunotandi er í einu herbergjanna ásamt starfsmanni og fylgist starfsmaðurinn grant með boðskiptum einstaklingsins og tjáningu hans. Þannig styrkjast tengsl þeirra og næmni fyrir hvort öðru. Sameiginlegt þátttaka er höfuðatriðið í að ná hámarks ávinningi með slíkum herbergjum. Skynörvunin sem fer fram er sjónörvun, heyrnarörvun, lyktarörvun og líkamsskynjun. Skynörvunin örvar heilastarfsemina og styrkir virkni ákveðinna heilastöðva.

Hvíta herbergið

Í Hvíta skynörvunarherberginu er yfirskriftin slökun og þægileg upplifun. Hvíta herbergið er innréttað með öllu hvítu þ.e. hvítum húsgögnum, hvíti, púðum, hvítum teppum og aðrir munir eru hvítir.

Í herberginu eru mismunandi ljósgjafar sem styrkja sjónskynið og eru í ýmsum litum. Ljósgjafarnir geta verið ljósa-vatnssúlur, lampar, ljósarenningar, ljósaseríur, ljósakúlur, diskókúla og skjávarpi svo eitthvað sé nefnt.

Tónlistin sem notuð er í Hvíta herberginu er slökunartónlist þannig að þjónustunotandinn upplifi slökun og ró meðan hann er í herberginu.

Engar kröfur eru á þjónustunotandann heldur er tilgangurinn að fá að njóta og upplifa. Það er því mikilvægt að aðrir komi ekki inn og trufli stundina og þau áhrif sem hún gefur þeim sem eru þar inni.

Í herberginu getur þjónustunotandinn einnig upplifað hvernig áferð hluta er, lykt úr ilmolíulampa, og hann gæti fengið fóta-, hand- eða höfuðnudd.

Í hvíta herberginu í Hæfingarstöðinni eru hægindastólar og boltabað. Ljós eru í boltabaðinu þannig að boltarnir og boltabaðið lýsist upp. Þegar setið eða legið er í boltabaðinu eflist líkamsskynjun einstaklingsins ásamt því að hann fær sjónörvun og jafnvel hljóðörvun.

Svarta herbergið

Í Svarta herberginu er yfirskriftin örvandi upplifun. Herbergið er innréttað með öllu svörtu, þ.e. svörtum húsgögnum, svörtum teppum og púðum, svörtum lömpum, hljóðgjöfum og öðrum svörtum munum. Þar sem svarti liturinn dregur mikið í sig ljós hentar vel að hafa neon ljós þar inni, þau eru jafnframt meira örvandi heldur en hefðbundin ljós.

Tónlistin í Svarta herberginu er meira örvandi heldur en tónlistin í Hvíta herberginu. Og önnur hljóð í Svarta herberginu gætu verið trommusláttur og þrumur. Skynörvunarmyndbönd sem sýnd eru í Svarta herberginu er einnig með sterkari litum heldur en eru í hvíta herberginu.

Þrátt fyrir að Svarta herbergið sé hugsað sem meiri örvandi upplifun en er í Hvíta herberginu á upplifunin ávallt að vera þægileg. Þjónustunotandi og starfsmaður eiga sameiginlega upplifun sem tengir þá og ýtir undir boðskipti milli þeirra.

Sérstaka aðgát skal hafa þegar einstaklingar með flogaveiki eru í Svarta herberginu því blikkandi ljós og mikið sjónörvandi myndbönd geta ýtt undir flog.

Nuddherbergi

Nuddherbergið er innréttað þannig að það sé hlýlegt og að þar sé notalegt að vera.

Í Nuddherberginu fer ekki fram hefðbundið líkamsnudd heldur fóta-, handa- og höfðunudd sem oft er talað um sem ungbarnanudd.

Líkamsskynjun einstaklingsins er örvuð og sterk tenging kemst á milli þjónustunotanda og starfsmanns. Starfsmaðurinn er ávallt vakandi fyrir boðskiptum þjónustunotandans á meðan á þessari stund stendur.

Í nuddherberginu er hægt að örva einnig lyktarskynið með ilmkjarnaolíum.

Ávallt skal fylgjast með viðbrögðum þjónustunotandans til að tryggja að hann upplifi nuddið á jákvæðan hátt. Líkamsskynjun þjónustunotenda getur verið önnur heldur en almennt gengur og gerist og þarf því að miða við þol og þarfir þjónustunotandans í nuddinu.