Lyktarskynjun

Lykt getur vakið upp minningar og tilfinningar, hún getur veitt slökun og verið ertandi. Í Hæfingarstöðinni er ekki unnið með Ilmolíumeðferð, heldur er lyktarskynun hugsuð sem einn hluti þess að örva virkni heilastarfseminnar þ.e. er að örva lyktarskynið. Starfsmaður og þjónustunotandi eiga stund saman þar sem þeir finna mismunandi lykt, ræða um lyktina og hvað þeir tengja við lyktina. Í gegnum lyktarskynjun er hægt að þróa samskipti og styrkja tengslamyndun.

Lykt sem notuð er getur verið lykt af mismunandi ávöxtum, blómum, kryddjurtum o.þ.h.