Myndræn uppsetning
Athafnatafla
Athafnatöflur eru notaðar fyrir einstaklinga með mikla þroska- og boðskiptahömlun. Á athafnatöfluna er sett upp skipulag dagsins þannig að einstaklingurinn hafi yfirlit yfir athafnir dagsins. Hún veitir yfirsýn yfir daginn og skapar einnig tilfinningu fyrir tíma. Einstaklingur sem notar athafnatöflu getur þannig áttað sig á hvað hann er að fara að gera og hvað tekur við að því loknu.Það skapar öryggi að vita hvað þú ert að fara að gera og að vita hvað er framundan.
Á athafnatöflu er festur hlutur eða mynd sem tákn fyrir ákveðna athöfn. Þessir hlutir / myndir geta verið mismunandi milli einstaklinga því athafnatöflur eru gerðar út frá þörfum hvers og eins. Sé einstaklingur að fara að í nudd, svo að borða og þar á eftir í boltabað gætu hlutirnir á athafnatöflunni verið ílát utan af nuddolíu, gaffall og bolti úr boltabaðinu. Myndirnar gætu verið af einstaklingnum sjálfum í aðstæðunum eða myndir sem sýna það sem er einkennandi fyrir athöfnina.
Í fyrstu, þegar byrjað er að nota athafnatöflu, getur verið að einstaklingurinn tengi ekki bolta við boltabaðið en þegar hann fer skipti eftir skipti að athafnatöflunni tekur hlutinn eða myndina af töflunni og fer beint á þann stað sem sú athöfn fer fram þá nær einstaklingurinn að tengja saman hlut og athöfn. Athafnatöflur ýta undir boðskipti einstaklingsins þar sem einstaklingurinn getur t.d. sýnt starfsmanni vilja sinn ef hann tekur glas, eins og á athafnatöflunni og sýnir starfsmanni. Þá gæti hann verið að segja „ég er þyrst/-ur“.