Að hlusta á upplestur

Það er ekki eingöngu skemmtanagildi sem felst í því að hlusta á upplestur heldur eru margvísleg áhrif þess sem styrkja boðskipti einstaklingsins við aðra.

Það styrkir tengingu milli aðila að taka þátt í sameiginlegum viðburði og ýtir undir boðskipti því með tengingunni sem skapast verður einnig meiri nánd milli aðilanna sem ýtir undir möguleg boðskipti.

Þegar hlustað er á upplestur í notalegu umhverfi verða flestir rólegri, slaka á og þeir sem hafa sí endurteknar hugsanir fá oft pásu frá þeim. Það að hlusta virkjar einnig önnur skynfæri og aðra heilastarfsemi heldur en t.d. að horfa. Einbeiting getur aukist, sögur geta hreyft við tilfinningum okkar, kveikt forvitni, eflt ímyndunaraflið og ýtt undir að einstaklingur vilji tjá sig. Jafnframt er gott að heyra að aðrir hafi svipaðan reynsluheim og maður sjálfur en það getur einnig kennt hlustandanum að einhver hafi allt annan reynsluheim, aðrar skoðanir eða upplifi hlutina mjög ólíkt honum sjálfum.

Að hlusta á upplestur er þjálfun í að hlusta á aðra. Noti upplesarinn röddina þannig að hún hljómi sterkt, í mismunandi hæð og tali mis hratt verður upplifunin ekki eingöngu sterkari og athygli meiri heldur lærir hlustandinn einnig að hlusta eftir mismunandi tjáningu og þeim boðskiptum sem upplesarinn er að senda með röddinni, andlitinu og látbragði líkamans. Þetta getur styrkt hlustandann í sinni eigin tjáningu en ekki síður í að átta sig á tjáningu annarra og veita tjáningu annarra eftirtekt.

Við það að hlusta á upplestur geta ýmsar hugsanir farið af stað, fólk getur lifað sig inn í söguna og fundið fyrir ýmsum tilfinningum og er nauðsynlegt að starfsmenn séu vakandi fyrir boðskiptum sem hlustandinn sendir. Í lok upplestrar er hægt að ræða um umfjöllunarefnið, ræða um þær tilfinningar sem hver og einn fann fyrir og ræða um allt það sem upp kom í upplestrinum.

Í upplestri er m.a. hægt að lesa:

  • Fréttir
  • Ljóð
  • Vísur
  • Tímarit
  • Lífsreynslusögur
  • Ævintýri og þjóðsögur
  • Gamansögur
  • Skrítlur
  • Sögur af stað sem þú þekkir
  • Sögur af framandi stað/menningu
  • Smásögur
  • Ævisögur