Lög og reglugerðir
Þroskaþjálfum ber að þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn, málefni fatlaðs fólks, heilbrigðisþjónustu svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á. Má þar benda m.a. á Lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga með síðari breytingum og Gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk.
Þroskaþjálfar heyra undir heilbrigðisráðuneytið og fá starfsleyfi frá Landlækni. Þeir starfa eftir lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 með síðari breytingum og reglugerð um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi nr. 1120/2012, með síðari breytingum. Bæði þessi lög tóku gildi 1. janúar 2013.
Hér fyrir neðan má sjá þau lög, reglugerðir og alþjóðasmaning sem þrosakþjálfar Hæfingarstöðvarinnar þurfa að þekka og starfa eftir:
- Lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi 1120/2012
- Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir 38/2018
- Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga 40/1991
- Samningur sameinuðuþjóðanna um réttindi fatlas fólks
Gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk kom út í ágúst 2020. Gæðaviðmið er sett til að meta, með samræmdum hætti, gæði og öryggi þjónustu. Miðað er við innihald laga, reglugerða og alþjóða sáttmálum.
Á vef stjórnarráðs Íslands segir:
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) annast þróun og útgáfu gæðaviðmiða, á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og laga um málefni aldraðra. Viðmiðin eru þróuð í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og að höfðu samráði við hagsmunasamtök. Viðmiðin byggja á lögum og reglugerðum, en einnig framkvæmdaáætlunum og sáttmálum, eftir því sem við á hverju sinni. Markmiðið er að efla gæði og öryggi þjónustunnar og stuðla að samræmingu hennar.