Áætlanir um vinnu og virkni
Hæfingarstöðin býður uppá einstaklingsmiðaða þjónustu og í því fellst meðal annars að hver og einn þjónustunotandi fái áætlun sem er sérsniðin að honum og hans þörfum. Með því móti er mögulegt að auka möguleika þjónustunotenda til að þróa styrkleika sína sem leiðir til frekari þátttöku í eigin lífi og þar með í samfélaginu.
Ferlið er þannig að þjónustunotandi og fagfólk Hæfingarstöðvarinnar mótar áætlun um hvað skal tekið fyrir hverju sinni og miðast áætlunin við þarfir og óskir þjónustunotandans út frá heildaráætlun staðarins. Fagfólkið setur upp áætlunina þar sem fram koma þau markmið eða þær áherslur sem unnið verður með, hvenær og hvernig áætlað er að unnið sé til að ná markmiðunum/áherslunum. Þegar greint er frá hvernig unnið er að markmiðinu kemur fram hvaða nálgunarleið/þjálfunarleið er notuð, hvaða „tól og tæki“ hægt er að nota og fleira þessháttar.
Í mörgum einstaklingsáætlunum er áhersla á að þjónustunotandinn sé að efla færni sína í ákveðnum þáttum en stundum er lögð áhersla á að þjónustunotandinn viðhaldi færni sinni í ákveðnum þáttum.
Skráningar á þjálfunarstundum er mikilvægar því þannig er hægt að sjá auðveldlega hver framþróunin er, hvaða nálgunarleiðir skila bestum árangri fyrir þjónustunotandann og fleira þessháttar.
Í lok tímabilsins er gert endurmat á einstaklingsáætluninni og ný áætlun unnin út frá endurmatinu.
Í öllum einstaklingsáætlunum Hæfingarstöðvarinnar er unnið út frá Heildaráætlun staðarins og þeim gildum sem Hæfingarstöðin hefur sett sér.