Aðrar fagstéttir

Samkvæmt 26. grein 6. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir skulu staðir sem sinna hæfingu fatlaðs fólk hafa þroskaþjálfa til að sinna þeim verkefnum sem falla undir lögin. Þar sem þörf krefur skal ráða félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, sálfræðinga og aðra sérfræðinga til starfa, og starfsfólk sem talar íslenskt táknmál.

Þverfagleg vinna hefur víða gefið góða raun og á það einnig við á Hæfingarstöðinni Bjarhrauni. Fagfólk sem hefur í námi sínu lært ýmislegt er varðar fatlað fólk, ýmiskonar þjálfun, kennslu og nálgun við mismunandi einstaklinga hefur starfað á Hæfingarstöðinni ásamt þroskaþjálfum. Þetta samstarf milli fagstétta hefur gefið góða raun þar sem starfsmannahópurinn hefur ávallt það að megin markmiði að veita bestu þjónustu sem unnt er að veita. Virðing er borin fyrir hverjum og einum þjónustunotanda og ávallt leitað leiða til að ná því markmiði að hver og einn fái þá bestu þjónustu sem hægt er að veita.