Þjónandi leiðsögn

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle teaching) var innleidd í starfið árið 2017. Þjónandi leiðsögn er hugmyndafræði sem byggir í grunninn á hugmyndum um gagnkvæm tengsl (e. Interdependence).

Kjarni þjónandi leiðsangar er að starfsmaðurinn geti veitt skilyrðislausa umhyggju sem þýðir að hann kemur fram af hlýju og alúð, hefur góða nærveru, notar hlýleg orð í jákvæðum tón, hefur hlýlegt augnaráð og vingjarnlega snertingu. Þetta gerir starfsmaðurinn án þess að krefjast neins til baka af þeim sem hann er að þjónusta. Starfsmaðurinn gerir þannig nærveru sína eftirsóknarverða og þjónustunotandinn skynjar að starfsmaðurinn sé kærleiksríkur og gefandi, jafnvel þegar þjónustunotandinn er illa upplagður eða sýnir óæskilega hegðun.

Þegar Þjónandi leiðsögn er notuð upplifir þjónustunotandinn öryggi og umhyggju fyrir sér, sem er alltaf mikilvægt en þó sérstaklega þegar hann á erfiðan dag og er óöruggur, reiður, pirraður eða hræddur. Þá getur hann fundið öryggi, skilning og væntumþykju hjá starfsmanninum.

Í þjónandi leiðsögn er áhersla lögð á tengslamyndun og samkennd. Sumir einstaklingar bera með sér minningar um vantraust, vonbrigði og ótta. Þeim hefur stýrt og krafðir um breytingar á sér. Við myndun félagslegra tengsla dregur úr ofbeldishegðun og nýtt jákvæðara hegðunarmynstur þróast. Einstaklingurinn fær að vera stjórnandinn í sínu lífi, hann tekur þátt í samfélaginu og getur notið félagsskapar annarra. Starfsmaðurinn stendur með honum í gegnum súrt og sætt.

Skapað er hvetjandi og jákvætt umhverfi þar sem áhersla er á félagstengsl og samvinnu. Þjónustunotandinn lærir í nánu samstarfi við starfsmanninn og þannig skapast góð tengsl milli þeirra þar sem samræður eru á jafningjagrundvelli, þjónustunotandinn fær athygli, aðstoð og stuðning. Einstaklingur sem upplifir öryggi, væntumþykju og velvild í sinn garð á með tímanum auðveldara með að sýna öðrum kærleika og áhuga sem er jafnframt valdeflandi og ýtir undir aukna samfélagsþátttöku.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni Gentle teaching international.

Skoða nánar