Posture Management

Í Hæfingarstöðinni er unnið eftir leiðbeiningum sjúkraþjálfara um hvernig best er að styðja þjónustunotendur við að viðhalda góðu líkamlegu ástandi og/eða auka það. Mikilvægt er að huga vel að almennri líkamsstarfsemi, viðhalda eða efla hreyfigetu, fyrirbyggja kreppur, þrýstingssár og annan vanda sem getur orsakast út frá fötlun einstaklingsins.

Posture Management vísar til stjórnunar á líkamsstöðu og er einstaklingsmeðferð sem miðar að því að efla hreyfiþroska einstaklingsins, hámarka færni hans, koma í veg fyrir afleidd vandamál af völdun fötlunar hans, bæta lífsgæði og auka þátttöku í daglegu lífi. Posture Management kemur ekki í stað annarrar einstaklingsmiðaðrar meðferðar heldur er rauður þráður í allri nálgun/meðferð einstaklingsins. Tvö aðal markmið Posture Management eru annars vegar Að hámarka og auðvelda færni og hins vegar Að lágmarka og/eða fyrirbyggja afleidd vandamál fötlunar. Nauðsynlegt er að horfa á aðstæður einstaklingsins yfir sólarhringinn með tilliti til sitjandi, standandi og liggjandi stöðu hans. Undirstaða færni til athafna er stöðuleiki líkamans og jafnvægi. Margir þættir ýta undir mikilvægi þess að vinna með Posture Management. Má þar nefna að sé ákveðinni líkamsstöðu sem haldið í lengri tíma í einu, t.d. við setu í stól, leiðir það með tímanum til aðlögunar á vefjum að þessari sérstöku líkamsstöðu þar sem sumir vefir yfirteygjast á meðan aðrir styttast. Aflaganir í mjöðmum og hrygg hafa bæði áhrif á getu einstaklingsins til að standa og áhrif á starfsemi innri líffæra ásamt því að lýkur á þrýstingssárum aukast. Með Posture Management má lágmarka þau eyðileggjandi áhrif sem vefir verða fyrir og tefja eða stöðva tilhneigingu til aflögunar.

Guðný Jónsdóttir, Sjúkraþjálfarinn, 2008.