Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Í Hæfingarstöðinni er farið eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og er fötluðu fólki sýnd fyllsta virðing, unnið út frá einstaklingsbundnum þörfum með það í huga að stuðla að fullri samfélagsþátttöku einstaklingsins.

Það sem þar kemur fram um hæfingu í samningnum er í 26. grein hans. Þar segir að þjónusta og áætlanir eigi að hefjast eins fljótt og unnt er og skulu byggja á þverfaglegu mati á þörfum og styrk hvers einstaklings um sig. Miðað skal við að stuðlað sé að þátttöku í samfélaginu og þjóðfélaginu á öllum sviðum án aðgreiningar.

Jafnframt á að stuðla að stöðugri þjálfun fagmanna og starfsmanna sem vinna við hæfingu og endurhæfingu. Hjálpartæki og -gögn, sem eru hönnuð fyrir fatlað fólk, skulu vera á boðstólum, þekking á þeim að vera til staðar og að þau séu notuð í þágu hæfingar og endurhæfingar.