Fyrir hverja er Bliss?
Bliss er notað víða um heim af þeim sem eiga erfitt með að tjá sig með tali. Stór hópur þeirra sem nota Bliss til tjáskipta eru einstaklingar með hreyfihömlun sem tjá sig með óhefðbundnum tjáskiptamáta.
Rökræna uppbygging táknanna virðist höfða sérstaklega vel til barna og eiga þau auðvelt með að læra Blissorðin og tileinka sér uppbyggingu þeirra. Þetta á einnig við fólk sem lærir Bliss þegar það er komið á fullorðinsaldur. Einstaklingurinn byrjar á stökum orðum, fer smátt og smátt yfir í einfaldar tengingar og með aukinni getu fer hann yfir í fullkomnar setningar.
Til eru ótal bækur sem Blissnotendur hafa sjálfir skrifað. Allt frá því að vera einfaldar myndasögur yfir í ljóðabækur svo eitthvað sé nefnt.
Stór kostur Blisstungumálsins er hve auðvelt er að eiga samskipti við aðra notendur Bliss tungumálsins, hvaðan sem þeir eru úr heiminum, því táknin/orðin eru alltaf eins sama hvaða tungumál sem er talað.