Gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk

Haustið 2020 gaf Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar í fyrsta sinn út gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk, sem unnin voru í náinni samvinnu við hagsmunaaðila í málaflokknum. Með gæðaviðmiðum eru komin opinber viðmið um hvernig þjónustan heilt á litið eigi að vera.

Gæðaviðmiðin eru sett upp út frá þjónustunotandanum og eru leiðbeiningar fyrir okkur til skoða hvernig þjónustan er og viðmið fyrir þjónustunotendur eða eftirlitsaðila til að fylgjast með hvort þjónustan sé eins og hún á að vera.

Hæfingarstöðin notar gæðaviðmiðin við mat á þjónustunni sem veitt er og gefa þau möguleika til viðhalda og elfa góða starfshætti.

Gæðaviðmiðin eru fjögur og undir hverju þeirra eru fjórar megin reglur. Verið er að meta hvort þjónustan sé veitt af umhyggju, hvort hægt sé að treysta því að þú fáir þjónustuna, hvort hún sé valdeflandi og hvort hún styðji þig til að vera virkur félagslega og þátttakandi í samfélaginu.

Öll atriðin, nema það sem á sérstaklega við um barnafjölskyldur, eiga við um Hæfingarstöðina sem þjónustuveitanda. Í fyrsta hluta er sérstaklega fjallað um hæfingastöðvar í lið 1.6.3 og segir þar: „Ég fæ þá hæfingu, endurhæfingu eða þjálfun sem ég þarf.“

Eins og fram kemur í Gæðaviðmiðunum leitast Hæfingarstöðin við að styðja þig, sem þjónustunotanda, og efla þannig að þér sé kleift að lifa sjálfstæðu lífi. Þú ert þátttakandi í að móta þjónustuna sem við veitum þér. Við leitumst við að starfsfólk Hæfingarstöðvarinnar sé traust þíns vert og að þjónustan sem þú færð sé örugg og áreiðanleg.

Skoða nánar