Starfskenning þroskaþjálfa
Í starfskenningu þroskaþjálfa kemur fram fyrir hvað þroskaþjálfar standa og sú hugmyndafræði sem þeir vinna eftir. Þroskaþjálfun er unnin á fræðilegan og skipulegan hátt, hún er unnin í samstarfi við þjónustunotendur og miðar að því að stuðla að jákvæðum viðhorfum, efla færni og auka skilning á aðstæðum fólks sem býr við skerðingar.