Tengslahringur

Halla Harpa Stefánsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi Hæfingarstöðvarinnar, er hugsmiður Tengslahringsins. Tengsahringurinn er í þróun og rétt er að taka fram að hann er ekki viðurkennd nálgunarleið, en Halla Harpa hefur útfært hann út frá reynslu sinni eftir hálfrar aldar þjónustu við fatlað fólk.

Tilgangur Tenglsahringsins er að mynda stoðgrind til að taka á móti upplýsingum um umhverfið og sjálfan sig og að veita yfirsýn yfir tilveruna og fólkið í kring. Skapaðar eru endurteknar aðstæður (í tíma og rými) þar sem þjónustunotendur / þátttakendur geti átt virka samverustund og myndað tengsl við fleiri en einn þjálfa. Þátttakendur eru alltaf fjórir, þ.e. tveir þjónustunotendur og tveir þjálfar.

Tengslahringur

Tengslahringurinn er hugsað sem „umgjörð“ eða „stund“ til að skapa aðstæður sem leiðir til skýrari mannlegra tengsla á milli a.m.k. fjögurra einstaklinga. Skapaðar eru aðstæður í tíma og rými, sem auðvelda tengsl og augnsamband. Aðstæðurnar tengja þátttakendur enn frekar saman með því að sitja þétt saman við kringlótt lítið borð. Athafnirnar í stundinni eru fyrirfram ákveðnar en þó er ekki verið að stýra „flæðinu“. Möguleiki er að hafa tónlist í stundinni en þá er það alltaf sama tónlistin sem rammar inn stundina. Endurtekning leiðir oft til aukins öryggis. Það er enginn einn sem stýrir stundinni heldur eru allir saman að upplifa og njóta samverunnar. Skapa þarf aðstæður sem m.a. bjóða upp á sameinginlega upplifun þar sem þátttakendur gera til skiptis, snerta/snertast, herma eftir t.d. hljóðum (alveg niður í andardrátt), gott augnsamband og samstillingu.

Þjálfunaraðstæður

Tengslahringurinn varir í 15 – 30 mínútur í senn, tímalengdin fer eftir líðan þjónustunotenda. Allir þátttakendur sitja við hringlaga borð, svokallað Tengslaborð, og eru ýmis gögn notuð til að tengja hópinn saman t.d. frotte lök sem allir fara undir, lök með stóru gati í miðju, sem fer utan um alla, , kúluplast, eldhúsfilmuplast, himnasæng, bönd eða teygjuhringur.

Þau þjálfunargögn sem eru notuð inni í hringnum eru t.d. ukulele, bolti með hljóðgjafa, led kúla, magic sand, sandtromma, bodhran tromma, rör eða þakrenna sem bolti er settur í og rúllað á milli, vatnsblöðrur, húlla hringur og speglar.

Mikilvægt er að hafa stundina undirbúna fyrirfram þannig að hægt sé að útskýra fyrir hópnum hvað fer fram og hvert markmið dagsins er. Þolinmæði er lykilatriði því hlutirnirnir eiga ekki að gerast strax heldur þurfa að fá að koma af sjálfum sér. Í lok tengslahringsins á hópurinn að spjalla saman um hvað hann gerði saman og hvernig hver og einn upplifði stundina.