Intensive Interaction

Intensive Interaction er nálgunarleið sem notuð er til að þjálfa tjáskipti og var þróuð á níunda áratug síðustu aldar af fagfólki á Harperbury Hospital School Hereforshire í Englandi. Skólinn var fyrir einstaklinga með alvarlega þroskahömlun sem dvaldi langdvölum á sjúkrahúsinu. Þróun nálgunarleiðarinnar var fyrst og fremst fylgt eftir af sálfræðingnum dr. Geraint Ephraim sem starfaði á spítalanum.

Intensive Interaction nálgunarleiðin miðar að því að þjálfa grundvallaratriði tjáskipta og var horft í hvernig börn læra frumtjáskipti á fyrsta aldursári sínu. Unnið er með hvernig einstaklingurinn getur notið samvista við annað fólk, tengst fólki, átt samskipti og lært að þekkja, skilja og æfa samskiptahætti. Skipulag um hvað á að þjálfa í hverri þjálfunarstund á ekki við í þessari nálgunarleið. Aftur á móti þjálfast samt sem áður notkun á augnsambandi, svipbrigðum, hljómfalli sem leiðir til máls, að skiptast á og uppbygging boðskipta. Þjálfunarstundir eru margar en stuttar til að byrja með og lengjast svo smám saman og tjáskiptin þróast og verða smám saman flóknari. Þjálfinn notar næmni sína fyrir einstaklingnum og tjáskiptum hans og bregst við þeim, önnur tól og tæki eru ekki nauðsynleg.

Miðað er við að stundirnar séu afslappaðar, ánægjulegar og hvetjandi fyrir einstaklinginn. Þjálfinn bregst við því sem einstaklingurinn gerir með því að framkvæma sömu athöfn á sama hátt. Einstaklingurinn skynjar að þjálfinn er til staðar fyrir sig en gerir ekki kröfur á sig. Farið er á hraða einstaklingsins, honum gefin full athygli en ekki ýtt á að eitthvað gerist.

Intensive Interaction hentar fólki sem:

  • hefur miklar tjáskiptaskiptahömlun.
  • er með mikla þroskaskerðingu.
  • sýnir mjög takmörkuð félagsleg tengsl.
  • sýnir mikla sjálfsörvandi hegðun.
  • útilokar tjáskiptalega þátttöku annarra.
  • sýnir mikið þráferli í hegðun.
  • sem er með takmarkaða skynjunarúrvinnslu
  • er með dæmigerða einhverfu

Árangur Intensive Interaction felst einna helst í að einstaklingar sem loka sig af fara að hafa áhuga á þjálfanum sem notar nálgunarleiðina, eiga samskipti augliti til auglitis og láta heyra í sér. Þeir einstaklingar sem áttu einhver samskipti áður en nálgunarleiðin var notuð verða enn færari í samskiptum. Fólkið varð einbeittara, raddsterkara og tjáði sig meira.