Fóta-, handa- og þrýstinudd
Nudd í þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir er fyrst og fremst húðnudd, snerting og svokallað ungbarnanudd.
Markmiðið með nuddinu er að efla líkamsskynjun og tilfinningaleg tjáskipti, auka vellíðunar- og öryggistilfinningu, að einstaklingurinn skynji líkama sinn sem eina heild, að örva húðskynjun einstaklingsins og að hann slaki á stífum vöðum. Þegar unið er með snertingu þarf ávallt að virða rými einstaklingsins og siðferði. Í gegnum nudd er hægt að efla sjálfsöryggi og ýta undir skilning einstaklingsins á að hann geti haft áhrif á umhverfi sitt.
Tengsl
Nudd er ákveðið form boðskipta, frumboðskipta, þar sem tengsl skapast milli tveggja einstaklinga með snertingu. Þegar unnið er í svo nánu samspili þarf ávallt að vera vakandi fyrir boðskiptum einstaklingsins, hvort einstaklingurinn sé öruggur og með athygli. Það er gert með því að fylgjast með augnhreyfingum, andardrætti og líkamshreyfingum. Þegar einstaklingur er öruggur er hann jafnframt opnari fyrir einhverju nýju.
Virkni og hraði
Það sem skiptir máli er að vera í sama hraða og takti og einstaklingurinn. Í gegnum endurtekningu þekkir einstaklingurinn aftur það sem er gert og öryggi skapast. Þetta getur svo leitt af sér að væntingar fyrir nuddinu og frumkvæði kemur. Þetta má til dæmis sjá í hreyfingum einstaklingsins, augnaráði og fleiru. Misjafnt er milli einstaklinga hversu lengi þeir vilja halda áfram í þessari stund og einnig þarf að hafa í huga að því að sumir vilja hlé inn á milli, en erfitt getur verið að sjá hvort einstaklingurinn vill hlé eða hvort hann vill að hætt sé með nuddið.
Þegar einstaklingur er að byrja að fara í nudd og á meðan verið er að skapa öryggi er oft ákjósanlegt að nuddstundin sé daglega og best er að nuddið fari fram alltaf á sama stað. Hafið eða gerið eitthvað sem afmarkar bæði upphaf og endi stundarinnar.
Umhverfið
Rýmið þar sem nuddið fer fram þarf að vera notalegt þannig að hægt sé að skapa öryggi og rólegheit. Lítið rými hentar oft betur þar sem það veitir frekar öryggistilfinningu að „finna fyrir rýminu“. Einnig þarf að ver nægilega hlýtt til að einstaklingnum líði vel. Gott er að þessi stund sé alltaf á sama stað og á sama tíma. Einstaklingurinn þarf ekki að fara úr öllum fötunum þó hann þiggi nudd, einstaklingurinn finnur öryggistilfinningu að vera í fötunum.
Mikilvægt er að hafa góða vinnuaðstöðu þannig að starfsmaðurinn nái góðum handtökum. Nálægð við einstaklinginn skiptir miklu máli og að púðar, teppi, olíur og annað sem nota á í stundinni sé innan seilingar.